Haustmót GR kvenna & Golfskálans – Grafarholt 12. september
Við hlökkum til að sjá ykkur á glæsilegu haustmóti GR kvenna í Grafarholtinu! Skráning hefst föstudaginn 4. september kl. 12 í Golfbox. Þegar skráning hefur verið gerð þarf að ganga frá greiðslu mótsgjalds 9.000 kr með millifærslu 0370-22-045208 kt. 230781-3899.
Mæting kl. 09:30
Þátttakendur byrja á að skrá sig inn í forstofu klúbbhússins
Morgunverðarhlaðborð í Klúbbhúsinu frá kl. 09:30–10:00.
Gengið á teiga kl. 10:00
Ræsing kl. 10:30
Á sumum teigum slær seinna holl kl. 10:40. Verið stundvís og passið vel upp á leikhraða.
Keppni og verðlaun
• Keppt verður í punktakeppni og höggleik
• Sigurvegari í höggleik verður krýnd
Sumarmeistari GR kvenna 2026
• Verðlaun fyrir
1.–3. sæti í punktakeppni
•
Nándarverðlaun á öllum par 3 holum
• Dregið verður úr skorkortum og allir þátttakendur fá teiggjöf
Skor í GolfBox gilda
Skorinu verður læst
30 mínútum eftir að síðasta kona kemur í hús og ekki verður hægt að breyta skorinu eftir það. Mikilvægt er því að fara vel yfir skorkortið strax eftir hring.
Að loknum hring
Smáréttahlaðborð í Klúbbhúsinu, verðlaunaafhending og skemmtikraftur kemur svo og slær botninn í dagskránna
Recent Posts












