Kæru félagsmenn – nú reynir á okkur öll
Vellirnir okkar skarta sínu fegursta þessa dagana og mikil vinna hefur verið lögð í að hafa þá í eins góðu ástandi og raun ber vitni. Því miður eru þeir þó farnir að láta verulega á sjá þar sem of margir kylfingar ganga í burtu án þess að laga eftir sig bolta- og kylfuför.
Vallarstarfsmönnum hefur fækkað verulega þar sem sumarstarfsskólafólkið okkar er farið í vetrarvinnuna sína.
Nú þurfum við öll að leggjast á eitt!
Við biðjum alla kylfinga um að gera það að sjálfsögðum hluta leiksins að laga boltaför á flötum og ganga frá torfusneplum í kylfuför. Það tekur aðeins örfáar sekúndur en skiptir gríðarlega miklu máli fyrir ástand vallanna – og upplifun þeirra sem á eftir koma.
Púttgrínið við Korpu er eingöngu fyrir pútt!
Sérstaklega viljum við vekja athygli á umgengni um nýja og glæsilega púttgrínið okkar við Korpu. Þar hefur því miður orðið vart við skemmdir sem eiga alls ekki að sjást á púttflöt.
Á púttgríninu við Korpu má eingöngu pútta – það er ekki vippflöt!
Þar hafa fundist stór og ljót kylfuför sem virðast annaðhvort vera eftir vipp eða högg inn á flötina, eða eftir að pútter hefur verið slegið niður í grasið. Slík umgengni getur valdið verulegum skemmdum á viðkvæmu yfirborðinu.
Vallarstarfsfólkið okkar leggur mikla vinnu í að skapa okkur þær frábæru aðstæður sem við njótum. Við kylfingarnir berum síðan ábyrgð á að ganga vel um og skila völlunum í góðu ástandi til þeirra sem á eftir okkur koma.
Lögum boltaförin. Göngum frá kylfuförunum. Berum virðingu fyrir æfingasvæðunum.
Völlurinn er okkar allra – göngum um hann eins og við viljum koma að honum ❤️
Recent Posts











