Íslandsbmótið í holukeppni - karla og kvenna - staðan

Sigríður GR Golf • 19. júní 2026

Share this article

Íslandsmótið í holukeppni 2026 fer fram dagana 19.-21. júní. Keppt verður í karla- og kvennaflokki, en mótið fer fram á tveimur stöðum í ár. Karlamótið verður leikið á Hólmsvelli hjá Golfklúbbi Suðurnesja og konurnar leika á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi.


Fyrsti keppnisdagur er 36 holu höggleikur


Karlaflokkur: Rástímar og staðan í höggleik

Kvennaflokkur: Rástímar og staðan í höggleik


Að loknum höggleiknum komast 16 efstu kylfingarnir í hvorum flokki áfram í holukeppnina.

Á laugardeginum eru leikin 16 manna úrslit og 8 manna úrslit. Á sunnudeginum fara síðan fram undanúrslit og úrslitaleikir, þar sem Íslandsmeistarar ársins í holukeppni verða krýndir.


Holukeppnin


Karlaflokkur: Rástímar og staðan

Kvennaflokkur: Rástímar og staðan


Á síðasta ári fögnuðu Böðvar Bragi Pálsson, GR, og Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS, sigri.


Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 3. ágúst 2026
Íslandsmótið í golfi fer fram á Korpúlfsstaðavelli dagana 6.-9. ágúst. Alls eru 92 kylfingar skráðir til leiks í karlaflokki og keppendahópurinn er gífurlega sterkur. Meðalforgjöf keppenda er +1,4 og eru 70 kylfingar með 0 eða lægra í forgjöf. Dagbjartur Sigurbrandsson er forgjafarlægstur með +5,6, Logi Sigurðsson er með +5,5 og Daníel Ísak Steinarsson með +4,9. Keppendur koma frá tólf golfklúbbum. Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta keppendur, eða 23, sem fá tækifæri til að leika um Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar á 17 keppendur, Keilir tólf og Golfklúbbur Akureyrar tíu. Dagbjartur stefnir á titilvörn Ríkjandi Íslandsmeistarinn Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR mætir í titilvörn á heimavelli. Dagbjartur vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á Hvaleyrarvelli í fyrra eftir mikla spennu á lokahringnum. Hann lék hringina fjóra á fimm höggum undir pari og varð einu höggi á undan Axel Bóassyni. Dagbjartur hefur að mestu leikið á Nordic Golf League-mótaröðinni á árinu og náð þar góðum árangri. Hann hefur þrívegis endað jafn í áttunda sæti á mótaröðinni, einu sinni fjórði og tryggði sér jafnframt sæti í lokaúrtökumóti U.S. Open annað árið í röð. Hann þekkir Korpúlfsstaðavöll vel og verður einn þeirra sem fylgst verður hvað mest með þegar mótið hefst. Aron Snær átt frábært sumar Aron Snær Júlíusson úr GKG hefur verið sigursælasti kylfingurinn á GSÍ mótaröðinni í sumar. Aron vann þrjú fyrstu mót sín á tímabilinu og er með góða forystu á stigalista mótaraðarinnar. Hann sigraði fyrst á Reykjanesmótinu, vann síðan á Korpúlfsstaðavelli í Korpubikarnum og fullkomnaði þrennuna í Þorlákshöfn. Aron hefur tvívegis orðið Íslandsmeistari, árin 2021 og 2024. Í síðari sigrinum setti hann nýtt mótsmet þegar hann lék Hólmsvöll á 14 höggum undir pari. Hann varð einnig jafn í þriðja sæti á Íslandsmótinu í fyrra. Axel vann á Hvaleyrarvelli Axel Bóasson úr Keili er fjórði forgjafarlægsti kylfingurinn með +4,8. Axel hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari, árin 2011, 2017 og 2018. Axel varð annar á Íslandsmótinu í fyrra og kemur inn í mótið eftir sigur í Hvaleyrarbikarnum. Þar hafði Aron Snær forystu fyrir lokahringinn en Axel vann Sigurð Bjarka Blumenstein í bráðabana. Hann varð einnig landsmeistari í golfhermum í vor, en úrslitakeppnin var einmitt leikin á Korpúlfsstaðavelli. Axel hefur því leikið vel á vellinum, bæði í golfhermum og úti á velli. Margir fyrrverandi meistarar Sex kylfingar á keppendalistanum hafa áður orðið Íslandsmeistarar í golfi: Axel Bóasson – 2011, 2017 og 2018 Kristján Þór Einarsson – 2008 og 2022 Aron Snær Júlíusson – 2021 og 2024 Guðmundur Ágúst Kristjánsson – 2019 Logi Sigurðsson – 2023 Dagbjartur Sigurbrandsson – 2025 Breiður hópur getur blandað sér í baráttuna Mikill fjöldi annarra kylfinga getur gert atlögu að efstu sætunum. Birgir Björn Magnússon varð Íslandsmeistari í holukeppni fyrr í sumar á meðan Hákon Örn Magnússon og Böðvar Bragi Pálsson urðu jafnir í öðru sæti í Þorlákshöfn á fjórtán höggum undir pari. Böðvar var jafnframt aðeins einu höggi frá bráðabana í Hvaleyrarbikarnum. Aron Emil Gunnarsson varð annar á Íslandsmótinu 2024 og lék þá á tólf höggum undir pari. Þá eru meðal annarra sterkra heimamanna þeir Guðmundur Ágúst, Hákon Örn, Böðvar Bragi, Sigurður Bjarki Blumenstein, Jóhannes Guðmundsson, Tómas Eiríksson Hjaltested og Andri Þór Björnsson. Tíu tryggðu sér sæti í undankeppni Mikil ásókn var í karlaflokk mótsins og þurfti því að halda undankeppni á Korpúlfsstaðavelli 30. júlí. Alls léku 33 kylfingar um tíu laus sæti. Kylfingarnir sem tryggðu sér sæti í Íslandsmótinu voru: Gunnar Smári Þorsteinsson, GR Jónas Guðmarsson, GR Fannar Ingi Steingrímsson, GHG Maron Björgvinsson, GA Gunnar Þórður Jónasson, GR Birkir Þór Baldursson, GL Óli Björn Bjarkason, GKG Kristinn Sölvi Sigurgeirsson, GOS Arnar Freyr Viðarsson, GA Guðmundur Freyr Sigurðsson, GS Guðmundur Freyr tryggði sér tíunda og síðasta sætið eftir bráðabana milli þeirra kylfinga sem léku á 77 höggum. Sjö kylfingar á biðlista Sjö kylfingar eru á biðlista og komast inn í mótið ef sæti losnar. Röð þeirra er eftirfarandi: Sebastian Blær Ómarsson Snorri Rafn William Davíðsson Kári Kristvinsson Ingi Rúnar Birgisson Arnór Daði Rafnsson Birgir Steinn Ottósson Kjartan Tómas Guðjónsson  Allt stefnir í stórt og spennandi Íslandsmót. Við hvetjum alla sem geta til að mæta á völlinn eða fylgjast með beinni útsendingu á RÚV!
Eftir Sigríður GR Golf 31. júlí 2026
Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu , verður haldið þann 3. ágúst næstkomandi, á frídegi verslunarmanna. Mótið er haldið í samstarfi við Arion banka og er þetta í þrítugasta skipti sem það fer fram. Venju samkvæmt munu nokkrir bestu kylfinga landsins etja kappi hver við annan. Að þessu sinni leika þeir í þágu Bergsins, sjálfstæðra, óhagnaðardrifinna samtaka sem veita ungu fólki gjaldfrjálsan stuðning vegna andlegrar líðunar og áskorana í daglegu lífi. Markmið Bergsins er að veita svokallaða lágþröskuldaþjónustu þar sem áhersla er lögð á aðgengilegan stuðning, ráðgjöf og fræðslu á forsendum unga fólksins. Einvígið hefst stundvíslega kl. 13.00. Fyrirkomulagið er með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á annarri braut. Eftir það verður farið í hina hefðbundnu útsláttarkeppni, eða „shoot-out“, þar sem sá sem er með hæsta skor á viðkomandi braut fellur úr leik. Við hvetjum öll til að koma og fylgjast með stórskotaliði okkar fremstu kylfinga leika í þágu mikilvægis málefnis. Sem fyrr sagði er Arion banki styrktaraðili Einvígisins á Nesinu. Í mótslok afhenda fulltrúar bankans forsvarsaðila Bergsins ávísun upp á eina milljón króna. Keppendur í Einvíginu á Nesinu 2026: Aron Snær Júlíusson, GKG Dagbjartur Sigurbrandsson, GR Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG Hlynur Bergsson, GKG Logi Sigurðsson, GS Ragnhildur Kristinsdóttir, GR Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR Skarphéðinn Egill Þórisson, NK Tómas Eiríksson Hjaltested, GR Sigurvegarar frá upphafi: 2025 Tómas Eiríksson Hjaltested 2024 Dagbjartur Sigurbrandsson 2023 Birgir Björn Magnússon 2022 Bjarni Þór Lúðvíksson 2021 Guðmundur Ágúst Kristjánsson 2020 Haraldur Franklín Magnús 2019 Guðmundur Ágúst Kristjánsson 2018 Ragnhildur Sigurðardóttir 2017 Kristján Þór Einarsson 2016 Oddur Óli Jónasson 2015 Aron Snær Júlíusson 2014 Kristján Þór Einarsson 2013 Birgir Leifur Hafþórsson 2012 Þórður Rafn Gissurarson 2011 Nökkvi Gunnarsson 2010 Birgir Leifur Hafþórsson 2009 Björgvin Sigurbergsson 2008 Heiðar Davíð Bragason 2007 Sigurpáll Geir Sveinsson 2006 Magnús Lárusson 2005 Magnús Lárusson 2004 Magnús Lárusson 2003 Ragnhildur Sigurðardóttir 2002 Ólafur Már Sigurðsson 2001 Björgvin Sigurbergsson 2000 Kristinn Árnason 1999 Vilhjálmur Ingibergsson 1998 Ólöf María Jónsdóttir 1997 Björgvin Þorsteinsson
Eftir Sigríður GR Golf 30. júlí 2026
Undankeppni fyrir Íslandsmótið í golfi 2026 fer fram á Korpúlfsstaðavelli í dag, fimmtudaginn 30. júlí.  Keppt verður um tíu síðustu sætin í karlaflokki vegna mikillar skráningar í mótið. Verði kylfingar jafnir í tíunda sæti að loknum hring verður leikinn bráðabani um síðasta lausa sætið. Allir þeir sem skráðir voru í Íslandsmótið í golfi en komust ekki beint inn í mótið fengu boð í undankeppnina. Þrjátíu og þrír kylfingar eru skráðir til leiks í undankeppnina og verður hart barist um lausu sætin. Þetta er í fjórða skiptið sem undankeppnin fer fram. Hér má nálgast rástíma og stöðu mótsins. Ekki verður haldin undankeppni í kvennaflokki þar sem ekki náðist sá lágmarksfjöldi (tíu) sem þarf til þess að undankeppni fari fram. Þess í stað hefur verið útbúinn biðlisti, sem er raðað eftir forgjöf. Komi til forfalla fyrir fyrsta keppnisdag verður haft samband við kylfinga á listanum og þeim boðin þátttaka. Biðlistinn í kvennaflokki er eftirfarandi: Ninna Þórey Björnsdóttir María Björk Pálsdóttir Sara María Guðmundsdóttir María Kristín Elísdóttir María Högnadóttir Kristín María Valsdóttir Katla María Sigurbjörnsdóttir Elísabet Þóra Ólafsdóttir
Eftir Sigríður GR Golf 28. júlí 2026
Kæru félagsmenn, nú styttist óðum í Íslandsmótið í golfi sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli dagana 5.–9. ágúst . Keppt verður á lykkjunni Sjórinn/Áin og munu bestu kylfingar landsins í karla- og kvennaflokki etja þar kappi um Íslandsmeistaratitlinn. Með jafn stóru móti fylgja óhjákvæmilega tímabundnar breytingar á aðgengi að vellinum. Korpúlfsstaðavöllur verður því lokaður frá mánudeginum 3. ágúst til og með mánudeginum 10. ágúst. Lokunin nær til allra lykkja vallarins sem og Thorsvallar . Á meðan lokun stendur yfir er Grafarholtsvöllur opinn og minnum við jafnframt á að þar verða teknir í notkun, frá og með mánudeginum 3. ágúst, nýir teigar á brautum 3. og 4. ásamt nýrri 3. flöt , sem við hvetjum félagsmenn til að upplifa. Við viljum einnig minna á að þegar GSÍ heldur mót á golfvelli félags, eiga félagsmenn þess félags rétt á 50% afslætti af vallargjaldi hjá öðrum golfklúbbum innan vébanda GSÍ, samkvæmt gjaldskrá hvers vallar. Afsláttur þessi gildir frá og með þriðjudeginum 4. ágúst til og með sunnudeginum 9. ágúst. Við hvetjum félagsmenn því til að nýta sér þetta góða tækifæri og heimsækja aðra golfvelli á meðan mótið stendur yfir. Jafnframt bendum við á Vinavelli Golfklúbbs Reykjavíkur , sem eru tólf talsins , og bjóða félagsmönnum hagstæð leikréttindi víða um land. Við hlökkum til að taka á móti bestu kylfingum landsins og vonum að félagsmenn sýni mótinu skilning og stuðning á meðan á því stendur. Við þökkum ykkur fyrir þolinmæðina og hvetjum ykkur til að koma og fylgjast með þeim fremstu etja kappi og sýna listir sínar. Ef þið hafið áhuga á að leggja okkur lið og gerast sjáfboðaliðar þá mælum við með því að þið skráið ykkur hér og takið þátt í mótahladinu með okkur!
Eftir Sigríður GR Golf 27. júlí 2026
Íslandsmótið í golfi fer fram á Korpúlfsstaðavelli dagana 6.-9. ágúst. Alls munu 40 kylfingar leika í kvennaflokki og stefnir allt í mikla baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Meðalforgjöf keppenda flokksins er 1,6. Tólf kylfingar eru með 0 eða lægra í forgjöf og sjö forgjafarlægstu kylfingar mótsins eru með +1,6 eða lægra. Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta keppendur í kvennaflokki, alls tíu. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar á níu kylfinga, en Golfklúbbur Mosfellsbæjar og Golfklúbburinn Keilir eiga átta hvor. Alls eiga tólf golfklúbbar kylfinga í kvennaflokki mótsins. Ragnhildur með lægstu forgjöfina Atvinnukylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR er forgjafarlægsti kylfingurinn á keppendalistanum með +3,9 í forgjöf. Hún hefur leikið frábært golf á tímabilinu og mætir á heimavöll með augun á titlinum. Ragnhildur varð önnur á Allegria Ladies Open á LET Access-mótaröðinni í Austurríki í maí og fylgdi þeim árangri eftir með sigri í Korpubikarnum á Korpúlfsstaðavelli. Þar lék hún lokahringinn á 65 höggum og vann með fimm högga mun. Hún varð einnig jöfn í þriðja sæti á Women’s English Open fyrr í júlí og situr í tíunda sæti stigalista LET Access-mótaraðarinnar. Ragnhildur varð Íslandsmeistari árið 2023 og hefur margoft verið í baráttu um titilinn. Að þessu sinni fær hún tækifæri til að sækja sinn annan titil, nú á heimavelli. Guðrún Brá mætir í titilvörn Ríkjandi Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili er næst forgjafarlægst með +3,6. Guðrún vann sinn fjórða Íslandsmeistaratitil á Hvaleyrarvelli í fyrra eftir umspil við Huldu Clöru Gestsdóttur. Áður hafði hún sigrað þrjú ár í röð, frá 2018 til 2020. Guðrún vann sér inn þátttökurétt á LET-mótaröðinni fyrir tímabilið og hefur leikið í sex mótum á þessu stærsta sviði atvinnukylfinga í Evrópu í sumar. Hún hefur þegar unnið Íslandsmeistaratitil á árinu, en hún varð Íslandsmeistari í holukeppni á Urriðavelli í júní. Þá stóð hún einnig uppi sem sigurvegari í Hvaleyrarbikarnum í júlí, og hefur því unnið bæði mót sín hér á landi í sumar. Perla Sól leiðir stigalistann Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar er með þriðju lægstu forgjöfina, +2,9. Eva hefur leikið vel í sumar og vann meðal annars mót GSÍ mótaraðarinnar í Þorlákshöfn. Hún var einnig á verðlaunapalli í Korpubikarnum og Reykjanesmótinu. Guðrún J. Nolan Þorsteinsdóttir kemur næst með +2,0 og Karen Lind Stefánsdóttir, GKG, er með +1,7. Karen er fjórða á stigalista mótaraðarinnar, en hún hefur leikið mjög vel í sumar. Hún stóð uppi sem sigurvegari Lexus bikarsins sem lauk um helgina, sem var síðasta mótið fyrir Íslandsmót. Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni og Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR eru báðar með +1,6. Perla verður ein þeirra sem stefnir á sigur á heimavelli. Hún varð Íslandsmeistari í Vestmannaeyjum árið 2022, aðeins 15 ára gömul, og er næstyngsti sigurvegari mótsins frá upphafi. Perla hóf sumarið með sigri á Reykjanesmótinu og varð síðan önnur í Korpubikarnum. Hún hefur endað í verðlaunasæti í fimm af sex mótum tímabilsins og er efst á stigalista kvenna. Hún varð jafnframt þriðja á Íslandsmótinu í fyrra og lék þá á besta skori áhugakylfings í kvennaflokki. Fjórir fyrrverandi meistarar Fjórir kylfingar á keppendalistanum hafa áður orðið Íslandsmeistarar í golfi. Auk Guðrúnar Brár, Ragnhildar og Perlu Sólar er þar Þórdís Geirsdóttir úr Keili, sem varð Íslandsmeistari árið 1987. Þórdís varð nýverið Íslandsmeistari í flokki 50 ára og eldri og varði þar titil sinn. Hún heldur því áfram að bæta við glæsilegan feril og verður enn á ný á meðal keppenda á stærsta móti ársins.  Það stefnir allt í frábært Íslandsmót á Korpúlfsstaðavelli í ágúst. Við hvetjum alla sem geta til að mæta á völlinn og fylgjast með okkar bestu kylfingum leika um Íslandsmeistaratitilinn.
Eftir Sigríður GR Golf 27. júlí 2026
Sigurður Bjarki Blumenstein tók forystuna í karlaflokki eftir frábæran annan hring og hring dagsins áöðrum keppnisdegi átti Þóra Sigríður Sveinsdóttir, sem setti nýtt vallarmet af teigum 52. Sigurður Bjarki var efstur fyrir lokahringinn Töluverðar breytingar urðu á stöðunni í karlaflokki á öðrum hring. Sigurður Bjarki Blumenstein, GR, lék sig upp í efsta sætið og er samtals á átta höggum undir pari. Sigurður lék hring dagsins á 64 höggum, sjö undir pari, sem er besti hringur mótsins til þessa. Jóhanni Frank Halldórsson var jafn í þriðja sæti fyrir lokahringinn á fjórum höggum undir pari. Böðvar Bragi fór holu í höggi Böðvar Bragi Pálsson, GR, átti högg dagsins á öðrum keppnisdegi, þegar hann fór holu í höggi á 9. holu Leirdalsvallar. Drauma­höggið hjálpaði honum að færa sig upp stöðutöfluna og inn í toppbaráttuna fyrir lokahringinn, en Böðvar er jafn í fimmta sæti á þremur höggum undir pari. Þóra Sigríður setti nýtt vallarmet Þóra Sigríður Sveinsdóttir átti þó besta hring dagsins á öðrum keppnisdegi. Hún lék Leirdalsvöll á 68 höggum og setti með því nýtt vallarmet af keppnisteigum kvenna (52). Þóra fékk fimm fugla og tvo skolla á hringnum og lék á þremur höggum undir pari. Vallarmetið skilaði Þóru mikilli hækkun upp stöðutöfluna. Hún deildi öðru sætinu fyrir lokahringinn með Fjólu Margréti Viðarsdóttur, en þær voru báðar á sjö höggum yfir pari. Perla Sól Sigurbrandsdóttir var höggi á eftir þeim í fjórða sæti. Lokahringurinn og úrslit Daníel Ísak hafði fyrsta sætið af Sigurði Bjarka eftir frábæra spilamennsku í gegnum allt mótið. Hann lék hringina þrjá á 68, 68 og 67 höggum og var því undir pari alla keppnisdagana. Sigurður Bjarki lauk leik á sjö höggum undir pari, þremur höggum á eftir Daníel og var jafn í öðru sæti mótsins. Sigurður Bjarki lék lokahringinn á 72 höggum. Tómas Eiríksson Hjaltested átti einnig góðan lokahring og jafnaði skor Daníels, 67 högg. Hann færðist upp í sjöunda sætið og lauk mótinu á einu höggi undir pari. Jóhann Frank Halldórsson varð jafn í fjórða sæti á þremur höggum undir pari. Böðvar Bragi Pálsson, sem fór holu í höggi á 9. holu á öðrum keppnisdegi, varð sjötti á tveimur höggum undir pari. Karen Lind hóf lokahringinn með fjögurra högga forskot og hélt forystunni allan daginn. Hún lék lokahringinn á 76 höggum, fimm yfir pari, og lauk mótinu á 221 höggi, átta höggum yfir pari. Þóra Sigríður Sveinsdóttir varð önnur á 16 höggum yfir pari. Hún lék besta hring flokksins á öðrum keppnisdegi þegar hún kom í hús á 68 höggum, þremur undir pari, og setti nýtt vallarmet. Perla Sól Sigurbrandsdóttir og Guðrún Birna Snæþórsdóttir deildu þriðja sætinu á 17 höggum yfir pari. Guðrún Birna lék næstbesta hring lokadagsins í kvennaflokki, á 78 höggum, en Karen átti besta skor dagsins með 76 högg. Mótið var það sjötta á GSÍ mótaröðinni í sumar og jafnframt síðasta mótið fyrir Íslandsmótið í golfi, sem fer fram á Korpúlfsstaðavelli dagana 6.-9. ágúst.
Eftir Sigríður GR Golf 27. júlí 2026
Íslandsmót unglinga 2026 í holukeppni fór fram á Selfossi dagana 23.-25. júlí. Keppni í flokki 12 ára og yngri hófst með höggleik þar sem kylfingum var raðað í sæti fyrir útsláttarkeppnina. Átta efstu kylfingarnir komust áfram í átta manna úrslit. Til úrslita í drengjaflokki 12 ára og yngri léku Ísak Hrafn Jónasson (GR) og Andri Mikael Steindórsson. Ísak Hrafn hafði betur, 3/1, og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni 2026. Ísak Hrafn varð jafn í þriðja sæti í höggleiknum og hóf útsláttarkeppnina á 3/1 sigri gegn Gunnari Helga Kristinssyni. Í undanúrslitum mætti hann Eiríki Boga Karlssyni, sem hafði verið efstur eftir höggleikinn, og vann spennandi leik þeirra 2/1. Andri Mikael, sem var sjöundi í röðuninni, vann tvo jafna leiki á leið sinni í úrslitin. Hann lagði Ólaf Bjarna Þórðarson 3/2 í átta manna úrslitum og vann síðan Sigurð Markús Sigurðarson (GR) með sama mun í undanúrslitum. Eiríkur Bogi tryggði sér þriðja sætið með öruggum 6/3 sigri gegn Sigurði Markúsi í leiknum um bronsið. Í flokki 15-16 ára var ekki leikinn höggleikur áður en útsláttarkeppnin hófst. Keppendum var þess í stað raðað í sæti eftir stöðu þeirra á stigalista mótaraðarinnar í sumar. Sextán kylfingar hófu leik í útsláttarkeppninni. Til úrslita léku Arnar Freyr Viðarsson og Birgir Steinn Ottósson (GR). Arnar Freyr vann úrslitaleikinn 2/1 og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni 2026. Birgir Steinn var sjötti í röðuninni. Hann vann Matthías Jörva Jensson 2/1 í fyrstu umferð og Ágúst Má Þorvaldsson með sama mun í átta manna úrslitum. Undanúrslitaleikur Birgis Steins og Hjalta Kristjáns Hjaltasonar var afar jafn og réðust úrslitin ekki fyrr en á 15. holu, þar sem Birgir Steinn tryggði sér sigurinn. Sara María var efst í röðuninni. Hún vann Ástu Rebekku Þorsteinsdóttur (GR) 5/4 í átta manna úrslitum og mætti síðan Kötlu Maríu Sigurbjörnsdóttur (GR) í undanúrslitum. Sara María hafði betur, 3/2, og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum. Katla María tryggði sér þriðja sætið með 3/2 sigri gegn Hrefnu Líf í leiknum um bronsið.
Eftir Sigríður GR Golf 24. júlí 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur þann heiður að halda Íslandsmótið í golfi 2026 í góðu samstarfi við Golfsamband Íslands. Og við þurfum á þinni hjálp að halda! Mótið fer fram dagana 6.–9. ágúst á Korpu þar sem leikið verður á völlunum Sjórinn og Áin. Markmið okkar er að skapa glæsilega umgjörð fyrir bæði keppendur og áhorfendur og gera Íslandsmótið að eftirminnilegum viðburði. Til þess þurfum við á öflugum hópi sjálfboðaliða að halda og leitum því til félagsmanna Golfklúbbs Reykjavíkur eftir aðstoð. Hlutverk sjálfboðaliða - við leitum meðal annars að sjálfboðaliðum í eftirtalin verkefni: Framverði og gæslu áhorfenda. Bílastæðavörslu / Leiðaraaðstoð Bera sand í kylfuför (kvöldvinna) Önnur fjölbreytt verkefni sem tengjast framkvæmd mótsins. Aðbúnaður sjálfboðaliða Allir sjálfboðaliðar fá vinnufatnað frá 66°Norður meðan á mótinu stendur. Einnig verður sérstök aðstaða fyrir sjálfboðaliða á 2. hæð í Korpu þar sem boðið verður upp á veitingar og góða hvíldaraðstöðu á milli verkefna. Vaktir - boðið verður upp á þrjár vaktir á hverjum keppnisdegi: Morgunvakt: kl. 7:00–11:00 Miðdagsvakt: kl. 10:30–16:00 Síðdegisvakt: kl. 15:30–20:30 Við vonum innilega að sem flestir félagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur sjái sér fært að leggja hönd á plóg og taka þátt í þessu stóra verkefni. Það er bæði ánægjulegt og gefandi að taka þátt í mótahaldi sem þessu, kynnast öðrum félagsmönnum og leggja sitt af mörkum til að gera Íslandsmótið að glæsilegri upplifun fyrir alla. Skráðu þig sem sjálfboðaliða og vertu hluti af einu stærsta golfmóti ársins. Við hlökkum til að starfa með þér! Taktu þátt!
Eftir Sigríður GR Golf 24. júlí 2026
Kæru kylfingar Vegna mikillar rigningar og vætu undanfarna daga eru vellir félagsins ennþá mjög votir. Í ljósi þess hafa vallarstjórar tekið ákvörðun um að leyfa ekki golfbíla á völlum félagsins um helgina. Kveðja, Vallarsvið.
Eftir Sigríður GR Golf 23. júlí 2026
Kæru kylfingar Vegna mikillar rigningar síðustu daga eru vellir félagsins ennþá vel blautir. Í ljósi þess hafa vallarstjórar tekið ákvörðun um að leyfa ekki golfbíla á völlum félagsins á morgun föstudag. Tekin verður ákvörðun um umferð golfbíla dag frá degi á meðan völlurinn er að drena sig. Kveðja, Vallarsvið. 
Show More