Mikilvæg áminning um notkun og skil á Spora
Kæru félagsmenn,
Við viljum minna á að Spori eru nú aðgengilegir á nýjum stöðum í klúbbhúsum okkar, eins og áður hefur verið auglýst. Við biðjum ykkur að kynna ykkur staðsetningarnar vel.
Grafarholt:
Spori er í hillu strax til hægri þegar þú kemur inn í golfverslunina, ásamt QR kóða til að skanna og staðfesta rástíma.
Korpa:
Spori í hillu á veggnum í anddyrinu og þar til vinstri er upplýsingaskjár með m.a. QR kóða til að skanna og staðfesta rástíma.
Á Korpunni eru tvær Spora hillur, efri hillan er fyrir 9 holur og sú neðri fyrir 18 holur.
Jafnframt viljum við biðja kylfinga um að skila Spora í þar til gert skilabox (ekkert nýtt þar), sem staðsett eru inni í klúbbhúsunum, að leik loknum.
ATH! Ekki á að skila Spora aftur í hillurnar
Með góðri samvinnu getum við tryggt að Spori séu ávallt tiltækir og aðgengilegir þeim sem eru á leið út á völl að spila golf.
Við þökkum fyrir góða samvinnu og skilning.
Bestu kveðjur,
Golfklúbbur Reykjavíkur
Recent Posts
















