Íslandsmót golfklúbba 2026 - 1.deild kvenna - rástímar, staða og úrslit
Íslandsmót golfklúbba 2026 í 1. deild kvenna fer fram á Hlíðavelli Golfklúbbs Mosfellsbæjar dagana 13.-15. ágúst.
Smelltu hér til að nálgast stöðu leikja og allar umferðir í einu skjali.
Golfklúbburinn Keilir sigraði árið 2025 eftir frábæran úrslitaleik gegn GR, þar sem tvær viðureignir fóru í bráðabana. Sveit GM hafði unnið mótið þrjú ár í röð þar á undan, og mæta nú á heimavöll.
Átta lið taka þátt í efstu deild í ár:
1. Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar, GKG
2. Golfklúbburinn Keilir, GK
3. Golfklúbbur Reykjavíkur, GR
4. Golfklúbbur Akureyrar, GA
5. Golfklúbbur Selfoss, GOS
6. Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM
7. Golfklúbburinn Setberg, GSE
8. Golfklúbbur Skagafjarðar, GSS
Kvennasveit GR er skipuð eftirfarandi kylfingum:
Ásdís Rafnar
Ásdís Valtýsdóttir
Berglind Björnsdóttir
Erna Steina Eysteinsdóttir
Katla María Sigurbjörnsdóttir
Margrét Jóna Eysteinsdóttir
Ragnhildur Kristinsdóttir
Svandís Eva Brynjarsdóttir
Liðsstjóri er Páll Birkir Reynisson
Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í kvennaflokki árið 1982.
Frá árinu 1982 hafa 4 klúbbar fagnað þessum titli.
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur oftast sigrað eða 22 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 14 titla,
Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 6 titla þar af eru þrír titlar þegar Golfklúbburinn Kjölur í Mosfellsbæ var til.
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefur tvívegis fagnað sigri í efstu deild kvenna á Íslandsmóti golfklúbba.
Recent Posts









