Sveitakeppni LEK - GR sigursælt - úrslit
LEK mót golfklúbba fór fram á vel völdum golfvöllum landsins 10. - 11. ágúst.
Golfklúbbur Reykjavíkur átti þar frábæra fulltrúa, líkt og undanfarin ár.
LEK mót golfklúbba kvenna 65+ léku á Hústóftavelli í Grindavík. Í úrslitaleiknum mættust sveit Golfklúbbs Reykjavíkur og Golfklúbb Keilis sem fór þannig að GR vann leikinn 2,5 stig á móti 0,5 stigum - sigurvegarar og 1. sætið tryggt 🏆
Sveitina skipuðu:
Guðrún Garðars
Líney Rut Halldórsdóttir
Oddný Sigsteinsdóttir
Stefanía Margrét Jónsdóttir
Steinunn Sæmundsdóttir
Margrét Geirsdóttir
Liðsstjóri: Margrét Geirsdóttir
LEK mót golfklúbba karlar 75+ léku á Þorláksvelli í Þorlákshöfn. fram Í úrslitaleiknum mættust sveit Golfklúbbs Reykjavíkur og Golfklúbbs Suðurnesja hafði sveit GR betur og tryggði þar með 1. sætið. 🏆
Sveitina skipuðu:
Gunnsteinn Skúlason
Hans Isebarn
Kjartan B. Guðmundsson
Ragnar Ólafsson
Þórhallur Sigurðsson
Walter Hjartarson
Liðsstjóri: Gunnsteinn Skúlason
LEK mót golfklúbba karlar 65+ léku á Öndverðanesvelli í Öndverðanesi. Í leiknum um 3. sætið mættust sveitir Golfklúbbs Reykajvíkur og Golfklúbbs Öndverðarness. Sveit GR hafði betur og vann þann leik 4,5 stig á móti 0,5 stigi. 🥉
Sveitina skipuðu:
Brynjar Harðarson
Einar Long
Hannes Eyvindsson
Jónas Kristjánsson
Karl Vídalín
Óskar Sæmundsson
Ragnar Ólafsson
Sigurður Hafsteinsson
Sigurjón Árni Ólafsson
Liðsstjóri var Sigurjón Árni Ólafsson
Golfklúbbur Reykjavíkur óskar öllum sínum sveitum og keppendum innilega til hamingju með árangurinn!
Vel gert - áfram GR! 💙
Recent Posts













