Íslandsmótið í holukeppni - Guðmundur Ágúst í 2. sæti og Perla Sól í 3. sæti
Íslandsmótið í holukeppni karla og kvenna fóru fram um helgina. Karlarnir léku á Hólmsvelli hjá Golfklúbbi Suðurnesja og konurnar á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi.
Á föstudaginn var leikinn 36 holu höggleikur þar sem 16 efstu komust áfram í holukeppnina, hjá körlum og konum.
Í karlaflokki voru það Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Hákon Örn Magnússon og Sigurður Bjarki Blumenstein sem tryggðu sér allir sæti í 16 manna úrslitum holukeppninnar.
Hákon Örn tapaði sínum leik á móti Kristjáni Karli Guðjónssyni og Sigurður Bjarki tapaði sínum leik á móti Birgi Birni Magnússyni.
Guðmundur Ágúst mætti Arnari Daða Svavarssyni í sínum leik og vann hann eina holu upp og hélt því áfram í 8 manna úrstli. Guðmundur Ágúst og Björn Viktor Viktorsson mættust í 8 manna úrslitum þar sem Guðmundur Ágúst hafði betur á 19 holu og vann leikinn.
Í undanúrslitum mættust Guðmundur Ágúst og Aron Emil Gunnarsson þar sem Guðmundur Ágúst vann leikinn með tveggja holu sigri. Guðmundur Ágúst lék því til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni. Í úrslitaleiknum mættust þeir Guðmundur Ágúst og Birgir Björn Magnússon, sá leikur var heldur betur spennandi þar sem Birgir Björn var með yfirhöndina fyrri níu holurnar og Guðmundur Ágúst var með yfirhöndina á seinni níu holunum. Þá var allt jafnt eftir 18 holu leik og því þurfti bráðabana til að knýja fram úrslit, Guðmundur Ágúst tapaði leiknum á 19 holu og varð því í 2. sæti í Íslandsmótinu í holukeppni 2026.
Í kvennaflokki voru það Þóra Sigríður Sveinsdóttir, Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir sem tryggðu sér allar sæti 16 manna úrslit holukeppninnar.
Þóra Sigríður tapaði sínum leik á móti Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur og Ásdís Rafnar tapaði sínum leik á móti Elsu Maren Steinarsdóttur.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir mætti Elvu Maríu Jónsdóttur þar sem Perla Sól vann leikinn á 19 holu. Perla Sól mætti svo Elsu Maren Steinarsdóttur í 8 manna úrslitum og fór sá leikur í bráðabana sem Perla Sól vann á 21 holu.
Í undanúrslitum mættust Perla Sól og Guðrún Brá Björgvinsdóttir þar hafði Guðrún Brá betur og vann leikinn með einnar holu sigri. Perla Sól lék því til úrslita um 3.-4. sæti. Í þeim leik mætti Perla Sól henni Fjólu Margréti Viðarsdóttur og spilaði Perla Sól þann leik vel, var með leikinn nokkuð í höndum sér og vann leikinn tvær holur upp, með sigrinum því tryggði hún sér 3. sætið í Íslandsmótinu í holukeppni 2026.
Við óskum Guðmundi Ágústi og Perlu Sól innilega til hamingju með sinn árangurinn!
Recent Posts











