Meistaramót GR 2026 - Lokahóf og verðlaunaafhending á Korpu á Laugardaginn
Lokahóf & verðlaunaafhending í Meistaramóti GR 2026 verður haldið á Korpunni næstkomandi laugardag, 11. júlí. Allir þátttakendur í Meistaramóti fá afhentan aðgöngumiða í lokahóf á síðasta keppnisdegi sem framvísa þarf hjá starfsfólki í veitingasölu þegar mætt er á laugardag.
Salurinn opnar kl. 18:00 og boðið verður upp á ljúffengar veitingar að hætti Klúbbhús, miðað við fjölda keppenda má reikna með að salurinn verði að minnsta kosti tvísetinn og því kjörið að mæta snemma og fylgjast með keppendum í meistaraflokk ljúka leik. Jóhann Alfreð mun veislustýra yfir borðhaldi af sinni einstöku list. Live-skor verður birt á skjá á báðum hæðum hússins. Leikur Englangs og Noregs í 8 liða úrslitum á HM í fótbolta verður sýndur á skjám í veitingasal.
Verðlaunaafhending er áætluð um kl. 21:00 og þegar klúbbmeistarar GR 2026 hafa verið krýndir mun DJ Tutti Frutti keyra stuðið upp og skemmtir gestum á fyrstu hæðinni til kl. 01:00 þegar húsið lokar.
Fyrir þá sem ekki taka þátt í mótinu en vilja mæta á Lokahóf – borða og gleðjast með keppendum – þá er hægt að kaupa miða í veitingasölu Klúbbhús á Korpu, miðaverð er 7.990 kr.
Nokkur atriði:
20 ára aldurstakmark er á svæðið
Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í Lokahóf
Mikilvægt er að muna eftir aðgangasmiða
Hlökkum til að gleðjast með ykkur á lokahófinu!
Golfklúbbur Reykjavíkur
Recent Posts











