Vilt þú hjálpa okkur í Íslandsmótinu?
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur þann heiður að halda Íslandsmótið í golfi 2026 í góðu samstarfi við Golfsamband Íslands. Mótið fer fram dagana 6.–9. ágúst á Korpu þar sem leikið verður á völlunum Sjónum og Ánni.
Markmið okkar er að skapa glæsilega umgjörð fyrir bæði keppendur og áhorfendur og gera Íslandsmótið að eftirminnilegum viðburði. Til þess þurfum við á öflugum hópi sjálfboðaliða að halda og leitum því til félagsmanna Golfklúbbs Reykjavíkur eftir aðstoð.
Hlutverk sjálfboðaliða
Við leitum meðal annars að sjálfboðaliðum í eftirtalin verkefni:
Framverði og gæslu áhorfenda.
Bílastæðavörslu / Leiðaraaðstoð
Bera sand í kylfuför (kvöldvinna)
Önnur fjölbreytt verkefni sem tengjast framkvæmd mótsins.
Aðbúnaður sjálfboðaliða
Allir sjálfboðaliðar fá vinnufatnað frá 66°Norður meðan á mótinu stendur. Einnig verður sérstök aðstaða fyrir sjálfboðaliða á 2. hæð í Korpu þar sem boðið verður upp á veitingar og góða hvíldaraðstöðu á milli verkefna.
Vaktir - boðið verður upp á þrjár vaktir á hverjum keppnisdegi:
Morgunvakt: kl. 7:00–11:00
Miðdagsvakt: kl. 10:30–16:00
Síðdegisvakt: kl. 15:30–20:30
Taktu þátt!
Við vonum innilega að sem flestir félagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur sjái sér fært að leggja hönd á plóg og taka þátt í þessu stóra verkefni. Það er bæði ánægjulegt og gefandi að taka þátt í mótahaldi sem þessu, kynnast öðrum félagsmönnum og leggja sitt af mörkum til að gera Íslandsmótið að glæsilegri upplifun fyrir alla.
Skráðu þig sem sjálfboðaliða og vertu hluti af einu stærsta golfmóti ársins. Við hlökkum til að starfa með þér!
Recent Posts













