Opna Stjörnugrís 2026

Sigríður GR Golf • 28. júní 2026

Share this article

Yfir 190 manns tóku þátt í Opna Stjörnugrís 2026, sem leikið var á Grafarholtsvelli í gær, laugardaginn 27. júní. Veðrið var kannski ekki upp á sitt besta, rigning var um morgunin og frekar kalt, þegar það hætti að rigna þá hitnaði aðeins í veðri en kylfingar létu það ekki stoppa sig - frábært skor hjá mörgum hverjum. Ræst var út frá kl.8:15 til 15:30. Allir keppendur fengu glæsilega teiggjöf, bolta, tí, handklæði ásamt öskju með flatargafli og tveimur boltamerkjum. Jón Eysteinsson kom inn á besta skori mótsins, 70 höggum eða einu höggi undir pari vallarsins.


Öll úrslit úr mótinu má sjá í mótskrá á Golfbox en helstu úrslit urðu þessi:


Punktakeppni:

  1. Sindri Þór Kristjánsson, 45 punktar
  2. Erna Steina Eysteinsdóttir, 41 punktar
  3. Rakel Reynisdóttir, 39 punktar (betri seinni 9)
  4. Kjartan Guðjónsson, 39 punktar
  5. Hlynur Már Heimisson, 38 punktar


Besta skor mótsins:

Jón Eysteinsson, 70 högg

 

Nándarverðlaun:
2.braut – Líney Sveinsdóttir 189 cm.
6.braut
– Erna Steina Eysteinsdóttir 70 cm.
11.braut
– Kristjana S. Þorsteinsdóttir 1 cm.
17.braut
– Kristín Markúsdóttir 78 cm.


Lengsta drive 3.braut kk. – Tómas Frostason

Lengsta drive 3.braut kvk. – Margrét Jóna Eysteinsdóttir


Við þökkum keppendum kærlega fyrir daginn og óskum vinningshöfum til hamingju með sinn árangur í mótinu. Hægt er að nálgast vinninga til Stjörnugrís hf., Saltvík, 162 Kjalarnes. Opnunartími er mánud. - fimmtud. frá kl. 08:00 - 16:00 og föstudaga frá kl. 08:00 - 15:15.


Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Stjörnugrís hf.


Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 12. ágúst 2026
The body content of your post goes here. To edit this text, click on it and delete this default text and start typing your own or paste your own from a different source.
Eftir Sigríður GR Golf 12. ágúst 2026
LEK mót golfklúbba fór fram á vel völdum golfvöllum landsins 10. - 11. ágúst. Golfklúbbur Reykjavíkur átti þar frábæra fulltrúa, líkt og undanfarin ár. LEK mót golfklúbba kvenna 65+ léku á Hústóftavelli í Grindavík. Í úrslitaleiknum mættust sveit Golfklúbbs Reykjavíkur og Golfklúbbs Odds sem fór þannig að GR vann leikinn 3 stig á móti 0 stigum - sigurvegarar og 1. sætið tryggt. Þess má geta að þær unnu alla sína leiki í öllum umferðum 3-0 og því með fullt hús stiga. Sveitina skipuðu: Guðrún Garðars Líney Rut Halldórsdóttir Oddný Sigsteinsdóttir Stefanía Margrét Jónsdóttir Steinunn Sæmundsdóttir Margrét Geirsdóttir Liðsstjóri: Margrét Geirsdóttir LEK mót golfklúbba karlar 75+ léku á Þorláksvelli í Þorlákshöfn. fram Í úrslitaleiknum mættust sveit Golfklúbbs Reykjavíkur og Golfklúbbs Suðurnesja hafði sveit GR betur og tryggði þar með 1. sætið. Sveitina skipuðu: Brynjar Harðarson Hans Isebarn Gunnsteinn Skúlason Walter Hjartarson Ragnar Jónsson Þórhallur Sigurðsson Liðsstjóri: Gunnsteinn Skúlason LEK mót golfklúbba karlar 65+ léku á Öndverðanesvelli í Öndverðanesi. Í leiknum um 3. sætið mættust sveitir Golfklúbbs Reykajvíkur og Golfklúbbs Öndverðarness. Sveit GR hafði betur og vann þann leik 4,5 stig á móti 0,5 stigi. Sveitina skipuðu: Brynjar Harðarson Einar Long Hannes Eyvindsson Jónas Kristjánsson Karl Vídalín Óskar Sæmundsson Ragnar Ólafsson Sigurður Hafsteinsson Sigurjón Árni Ólafsson Liðsstjóri var Sigurjón Árni Ólafsson Golfklúbbur Reykjavíkur óskar öllum sínum sveitum og keppendum innilega til hamingju með árangurinn! Vel gert - áfram GR! 💙
Eftir Sigríður GR Golf 11. ágúst 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru Íslandsmeistarar í golfi 2026. Íslandsmótinu lauk á Korpúlfsstaðavelli í dag, en bæði náðu þau að verja titil sinn frá síðasta ári. Þetta er í fyrsta skiptið frá árinu 1992 sem báðir titlarnir eru varðir. Dagbjartur Íslandsmeistari eftir örugga frammistöðu Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur hóf lokahringinn með sex högga forystu og lét hana aldrei af hendi. Hann lék lokahringinn á 71 höggi, pari vallarins, og lauk mótinu á 274 höggum, tíu undir pari. Dagbjartur fékk fjóra fugla og fjóra skolla á lokahringnum. Hann var einu höggi undir pari eftir fyrri níu holurnar og bætti við fugli á elleftu holu áður en hann tapaði tveimur höggum á 16. og 17. holu. Par á lokaholunni tryggði honum Íslandsmeistaratitilinn með fimm högga mun. Dagbjartur lék hringina fjóra á 66, 68, 69 og 71 höggi. Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss varð annar á fimm höggum undir pari. Hann lék lokahringinn á 70 höggum, einu undir pari, eftir að hafa fengið þrjá fugla á fyrstu sjö holunum. Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar átti næstbesta hring lokadagsins. Hann lék á 67 höggum, fjórum undir pari, og færðist upp í þriðja sætið á þremur höggum undir pari samtals. Tómas Eiríksson Hjaltested varð fjórði á tveimur höggum undir pari. Kristófer Orri Þórðarson og Hjalti Kristján Hjaltason deildu fimmta sætinu á einu höggi yfir pari. Guðrún Brá Íslandsmeistari í fimmta skiptið Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili hóf lokahringinn með þriggja högga forystu og lék á 71 höggi, pari vallarins. Hún lauk mótinu á 283 höggum, einu höggi undir pari, og varði þar með Íslandsmeistaratitil sinn. Þetta er hennar fimmti Íslandsmeistaratitill, en Guðrún hafði áður unnið árin 2018, 2019, 2020 og 2025. Með sigrinum hefur hún nú oftar unnið mótið en pabbi hennar, Björgvin Sigurbergsson, sem vann mótið fjórum sinnum. Guðrún er nú einnig næst sigursælasta konan í sögu mótsins, en Karen Sævarsdóttir er sú eina sem unnið hefur oftar. Karen varð átta sinnum Íslandsmeistari í golfi. Guðrún Brá fékk skolla á fyrstu holu en svaraði með erni á sjöundu holu. Hún fékk annan skolla á níundu holu áður en fugl á þeirri tíundu kom henni aftur undir par á hringnum. Skolli á elleftu holu varð síðasta tapaða högg hennar í mótinu og hún lék síðustu sjö holurnar á pari. Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni varð önnur á fjórum höggum yfir pari, fimm höggum á eftir Guðrúnu Brá. Elsa lék lokahringinn á 73 höggum og fékk tvo fugla á fyrstu sex holunum, en tapaði fjórum höggum á seinni níu. Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð þriðja á sex höggum yfir pari. Hún var komin þrjá undir par eftir átta holur á lokahringnum en erfiður kafli á seinni níu varð til þess að hún lauk leik á 74 höggum. Perla Sól Sigurbrandsdóttir varð fjórða á 14 höggum yfir pari. Heiða Rakel Rafnsdóttir og Pamela Ósk Hjaltadóttir deildu fimmta sætinu á 15 höggum yfir pari. Frábæru móti á Korpúlfsstaðavelli lokið. Mikill fjöldi fólks gerði sér ferð á völlinn á sá okkar bestu kylfinga leika á þessum flotta keppnisvelli. Hér má sjá heildarúrslit og tölfræði mótsins Hér má sjá myndapakka frá mótinu
Eftir Sigríður GR Golf 11. ágúst 2026
Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss eru stigameistarar GSÍ mótaraðarinnar árið 2026. Aron Emil fagnar sínum fyrsta stigameistaratitli en Perla Sól vinnur titilinn í annað sinn. Hún varð einnig stigameistari árið 2023. Perla Sól á meðal efstu fimm í öllum mótum sumarsins Perla Sól lék í öllum sjö mótum GSÍ mótaraðarinnar og lauk tímabilinu með 4.560 stig. Hún var 860 stigum á undan Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, sem varð önnur með 3.700 stig. Mikill stöðugleiki einkenndi sumar Perlu, en hún hafnaði í einu af fimm efstu sætunum í öllum mótum mótaraðarinnar. Perla hóf tímabilið á sigri í Reykjanesmótinu og fékk þar 1.000 stig. Hún varð önnur í Korpubikarnum, fimmta í Powerade-mótinu í Þorlákshöfn og þriðja á Íslandsmótinu í holukeppni. Hún deildi öðru sætinu í Hvaleyrarbikarnum og varð jöfn í þriðja sæti í Lexus-bikarnum á Leirdalsvelli. Perla lauk svo sumrinu í fjórða sæti á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli. Árangur Perlu í mótum sumarsins má finna í töflunni hér að neðan. Aðeins 110 stig skildu að Aron og Aron Baráttan um stigameistaratitilinn í karlaflokki var spennandi. Aron Emil lauk tímabilinu með 4.178 stig, einungis 110 stigum meira en Aron Snær Júlíusson, sem varð annar með 4.068 stig. Aron Emil lék í öllum sjö mótum sumarsins og var aldrei neðar en í sjöunda sæti. Hann vann ekki mót á tímabilinu en stöðug og góð frammistaða skilaði honum fyrsta stigameistaratitlinum. Hann hóf sumarið í fjórða sæti í Reykjanesmótinu og varð annar í Korpubikarnum. Aron Emil varð sjöundi í Powerade-mótinu og þriðji á Íslandsmótinu í holukeppni. Hann deildi fimmta sætinu í Hvaleyrarbikarnum og öðru sætinu í Lexus-bikarnum. Aron Emil lauk svo tímabilinu annar á Íslandsmótinu í golfi, þar sem hann fékk 1.050 stig og tryggði sér stigameistaratitilinn. Fyrst var keppt um stigameistaratitla kvenna og karla á Íslandi árið 1989. Perla Sól bætir nú öðrum titli sínum við þann sem hún vann árið 2023, en Aron Emil kemst í fyrsta sinn á lista stigameistara GSÍ mótaraðarinnar. Til hamingju með árangurinn Perla Sól og Aron Emil!
Eftir Sigríður GR Golf 7. ágúst 2026
Kæru kylfingar Það veður lokað fyrir golfbílaumferð í Grafarholti í dag vegna bleytu og rigningar. Kveðja, Vallarsvið.
Eftir Sigríður GR Golf 6. ágúst 2026
Íslandsmótið í golfi 2026 hófst á Korpúlfsstaðavelli í morgun. Ragnhildur Sigurðardóttir, fjórfaldur Íslandsmeistari í höggleik, sló fyrsta högg mótsins við formlega setningu þess. Ragnhildur er ein af sigursælustu kylfingum íslenskrar golfsögu. Hún varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn árið 1985 á Jaðarsvelli á Akureyri, aðeins 15 ára gömul. Hún er enn í dag yngsti kylfingurinn sem hefur orðið Íslandsmeistari í golfi. Ragnhildur bætti síðar við þremur Íslandsmeistaratitlum, árin 1998, 2003 og 2005, og hefur því fjórum sinnum fagnað sigri á Íslandsmótinu. Hún hefur einnig unnið fjölmarga aðra titla á löngum og farsælum ferli og starfað um árabil við golfkennslu. Það var því vel við hæfi að Ragnhildur skyldi slá upphafshöggið á heimavelli sínum, en hún hefur um áratugaskeið verið einn af öflugustu kylfingum Golfklúbbs Reykjavíkur. Með höggi Ragnhildar var Íslandsmótið formlega sett, en leikið verður á Korpúlfsstaðavelli næstu fjóra daga. Á meðal viðstaddra voru Gísli Guðni Hall, formaður GR, Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ.
Eftir Sigríður GR Golf 6. ágúst 2026
Kæru kylfingar Það veður lokað fyrir golfbílaumferð í Grafarholti í dag vegna bleytu og rigningar. Kveðja, Vallarsvið.
Eftir Sigríður GR Golf 5. ágúst 2026
Kæru félagsmenn, Við vonum að nýja 3. grínið veki ánægju, við biðja ykkur hinsvegar um að SLÁ EKKI af gömlu flötinni. Taka boltann upp og láta hann falla utan gömlu flatarinnar, líkt og um blátt svæði sé að ræða. Þess má geta að slái kylfingur af rangri flöt þá eru það 2 högg í víti. Kveðja, Vallarsvið
Eftir Sigríður GR Golf 5. ágúst 2026
Íslandsmótið í golfi 2026 fer fram á Korpúlfsstaðavelli Golfklúbbs Reykjavíkur dagana 6.-9. ágúst. Alls eru 132 kylfingar skráðir til leiks, 92 í karlaflokki og 40 í kvennaflokki. Á meðal keppenda eru fremstu kylfingar landsins, atvinnukylfingar og tíu fyrrverandi Íslandsmeistarar í golfi. Smelltu hér til að skoða rástíma og stöðu mótsins: Leikinn verður 72 holu höggleikur á fjórum keppnisdögum. Eftir fyrstu 36 holurnar verður keppendahópurinn skorinn niður fyrir tvo síðustu keppnisdagana. Sýnt verður beint frá síðustu þremur keppnisdögum mótsins á RÚV. Aldrei hefur verið sýnt jafn lengi frá Íslandsmótinu og verður mikið lagt í útsendinguna. Útsendingartímar: Föstudagur 7. ágúst kl. 15:30-18:30 Laugardagur 8. ágúst kl. 15:00-17:45 Sunnudagur 9. ágúst frá kl. 14:30 til mótsloka Þetta verður í 29. sinn sem sýnt er beint frá Íslandsmótinu í golfi í sjónvarpi. Fyrsta beina útsendingin var frá Hólmsvelli í Leiru árið 1998. Nánari upplýsingar um útsendinguna . Áhugasamir eru einnig hvattir til að mæta á Korpúlfsstaðavöll og fylgjast með fremstu kylfingum keppa um Íslandsmeistaratitlana. Aðgangur á mótið er ókeypis. Á yfirlitsmynd mótsins, sem hægt er að smella á til að stækka, má sjá staðsetningu bílastæða, salerna og veitingatjalds auk allra hola Korpúlfsstaðavallar.
Eftir Sigríður GR Golf 4. ágúst 2026
Það er alltaf mikill heiður að fá að halda Íslandsmótið í golfi og það er svo sannarlega engin undantekning á því hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Menn þar á bæ ætla svo sannarlega að halda veglegt Íslandsmót með Korpúlfsstaðavöll í toppstandi. Gísli Guðni Hall, formaður Golfklúbbs Reykjavíkur, sat fyrir svörum í íslenska golftímaritinu Sveiflan, sem kom út á dögunum. Þar var meðal annars farið yfir Íslandsmótið í golfi 2026, umfangsmikla umgjörð mótsins og Korpúlfsstaðavöll. Hægt er að lesa blaðið í heild sinni á sveiflan.net , en tímaritið má einnig nálgast í golfskálum landsins. „Þetta er mikill heiður fyrir okkur sem og aðra klúbba. Við í GR höfum gert þetta reglulega í gegnum árin og viljum vera klúbbur sem gerir það reglulega. Það gerir mikið fyrir klúbbinn og setur á okkur pressu. Þetta er stærsti viðburður sumarsins og við viljum taka þátt í honum.“ segir Gísli Guðni Hall, formaður GR, spenntur í aðdraganda mótsins. Eins og formaðurinn segir setur það pressu á viðkomandi klúbb þegar Íslandsmótið er haldið þar. Jákvæða pressu sem gaman er að vinna undir. „Sérstaklega þegar nær dregur. Strax í fyrra er stjórn og starfsmenn farnir að huga að þessu. Allar ákvarðanir varðandi vellina okkar eru teknar með það í huga að við séum að fara að halda þetta mót og við verðum að hafa Korpúlfsstaðavöllinn í toppstandi. Höfum farið í smá framkvæmdir til að mæta meiri getu kylfinga. Þannig er þróunin í golfinu.“ segir Gísli, en það er svo sannarlega í mörg horn að líta. „Það sem tekur lengstan tíma er að passa upp á að völlurinn verði eins og við viljum hafa hann. Í vetur fórum við svo að græja bílastæði og almennt aðgengi áhorfenda að vellinum. Huga að viðbótarsalernum, stúku, tjöldum og þess háttar. Það var farið snemma í að finna út úr praktísku málunum. Við höfum fundað mikið með GSÍ, sem heldur mótið og hefur auðvitað margt að segja um hvernig þetta er gert og kynningarmál í gegnum þá. Þetta er allt í afar fínum farvegi.“ Íslandsmótssvæðið Sjálfboðaliðarnir mikilvægir sem fyrr Nú þegar farið er að styttast í mótið þarf að huga að mörgum aukamálum. Til að mynda að fá sjálfboðaliða til starfa, en svona mót er aldrei haldið án frábærrar aðstoðar sjálfboðaliða. „Það er að koma meiri stemning og við reynum að búa til úr þessu góða stemningu innan klúbbsins. Fá félagsmenn til þess að taka þátt sem sjálfboðaliðar í veislunni. Það þarf auðvitað fjölda sjálfboðaliða og ég er bjartsýnn á að okkar góða fólk vilji vera með,“ segir formaðurinn en segir auðvitað leitt að sama skapi að þurfa að loka vellinum í viku fyrir félagsmönnum. Það er afar jákvætt hvernig okkar góða fólk tekur í þetta og er til í að leysa allt. „Það er gríðarleg ásókn í vellina okkar og að þurfa að loka í viku er stórmál. Það er ekki neikvætt en samt stórmál sem við tökum alvarlega. Við höfum samið við aðra klúbba um að taka á móti okkar fólki á meðan. Það er afar jákvætt hvernig okkar góða fólk tekur í þetta og er til í að leysa allt. Það er ekki vandamálið. Við erum íþróttafélag. Stærstu mótin þurfa að fara fram á bestu völlunum og við viljum taka þátt í því.“ Viljum alltaf hækka rána Kröfurnar varðandi umgjörð aukast ár frá ári í golfinu eins og öðrum íþróttum. Það hefur gengið vel að mæta þeim kröfum að mati formannsins. „Það er alltaf gert meira á hverju ári. Síðast er við vorum með mótið í Grafarholtinu var umgjörðin frábær. Í fyrra hjá Keili var umgjörðin líka frábær, sem og á mótunum þar á undan. Það er alltaf verið að reyna að hækka rána og við erum að sjálfsögðu líka að reyna að gera það. Keilir gerði til að mynda marga frábæra hluti í fyrra og við tökum frá þeim í ár. Hvernig þeir til að mynda héldu utan um sjálfboðaliðastarfið var alveg frábært. Þetta var frábær umgjörð hjá þeim,“ segir Gísli Guðni, en hann segir allt benda til þess að GR geti haldið frábært Íslandsmót. „Íslandsmótið verður frábært. Óvissuþátturinn á vorin er auðvitað hvernig kemur völlurinn undan vetri. Korpan kom betur undan vetri í ár en síðustu þrjú ár. Miklu betur. Við drógum því ekki stutta stráið í ár og völlurinn er góður. Hann verður algjörlega frábær er Íslandsmótið byrjar. Línurnar í brautunum verða flottar og röffið áskorun. Við munum tjalda öllu til og sjá um að allir verði sáttir. Bæði kylfingar og áhorfendur.“
Show More