Sýnum vallarstarfsmönnum fyllstu varkárni
Sigríður GR Golf • 29. júní 2026
Kæru félagsmenn og aðrir kylfingar,
að gefnu tilefni, því miður, viljum við minna alla félagsmenn og gesti á að sýna fyllstu aðgát ef og/eða þegar slegið er í nágrenni við vallarstarfsmenn.
Vallarstarfsmenn leggja sig fram á hverjum degi við að halda vellinum okkar í sem besta ástandi fyrir kylfinga. Því biðjum við alla kylfinga að:
- að bíða með högg ef starfsmaður er innan höggfæris
- að ganga úr skugga um að starfsmaður hafi tekið eftir kylfingnum og gefið merki þess að halda leik áfram
- að kalla FORE ef að höggið sefnir í átt að örðum, hvort sem það er vallarstarfsmaður eða annar kylfingur
Hjálpumst að við að tryggja öryggi allra við leik í okkar frábæru íþrótt og útiveru. Það er á allra ábyrgð.
Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf
•
12. ágúst 2026
Íslandsmót golfklúbba í 1. deild karla fer fram á Strandarvelli Golfklúbbs Hellu dagana 13.-15. ágúst 2026. Smelltu hér til að nálgast stöðu leikja og allar umferðir í einu skjali. Golfklúbbur Reykjavíkur er ríkjandi meistari karla, en klúbburinn sigraði mótið í 26. skiptið á Leirdaldsvelli í fyrra. Átta sveitir eru í efstu deild: 1. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG 2. Golfklúbburinn Keilir, GK 3. Golfklúbbur Reykjavíkur, GR 4. Golfklúbbur Akureyrar, GA 5. Golfklúbbur Selfoss, GOS 6. Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM 7. Golfklúbbur Suðurnesja, GS 8. Golfklúbbur Bolungarvíkur, GBO Karlasveit GR er skipuð eftirfarandi kylfingum: Arnór Tjörvi Þórsson Böðvar Bragi Pálsson Elvar Már Kristinsson Guðmundur Ágúst Kristjánsson Hákon Örn Magnússon Jóhann Frank Halldórsson Jóhannes Guðmundsson Sigurður Bjarki Blumenstein Tómas Eiríksson Hjaltested Liðsstjóri er Guðmundur Ágúst Kristjánsson Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í karlaflokki árið 1961. Frá þeim tíma hafa 6 klúbbar fagnað þessum titli. Golfklúbbur Reykjavíkur hefur sigrað oftast eða 26 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 15 titla, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er með 9, Golfklúbbur Akureyrar er með 8 titla, Golfklúbbur Suðurnesja 3, og Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 4 titla, þar af 2 þegar klúbburinn var Golfklúbburinn Kjölur.

Eftir Sigríður GR Golf
•
12. ágúst 2026
Íslandsmót golfklúbba 2026 í 1. deild kvenna fer fram á Hlíðavelli Golfklúbbs Mosfellsbæjar dagana 13.-15. ágúst. Smelltu hér til að nálgast stöðu leikja og allar umferðir í einu skjali. Golfklúbburinn Keilir sigraði árið 2025 eftir frábæran úrslitaleik gegn GR, þar sem tvær viðureignir fóru í bráðabana. Sveit GM hafði unnið mótið þrjú ár í röð þar á undan, og mæta nú á heimavöll. Átta lið taka þátt í efstu deild í ár: 1. Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar, GKG 2. Golfklúbburinn Keilir, GK 3. Golfklúbbur Reykjavíkur, GR 4. Golfklúbbur Akureyrar, GA 5. Golfklúbbur Selfoss, GOS 6. Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM 7. Golfklúbburinn Setberg, GSE 8. Golfklúbbur Skagafjarðar, GSS Kvennasveit GR er skipuð eftirfarandi kylfingum: Ásdís Rafnar Ásdís Valtýsdóttir Berglind Björnsdóttir Erna Steina Eysteinsdóttir Katla María Sigurbjörnsdóttir Margrét Jóna Eysteinsdóttir Ragnhildur Kristinsdóttir Svandís Eva Brynjarsdóttir Liðsstjóri er Páll Birkir Reynisson Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í kvennaflokki árið 1982. Frá árinu 1982 hafa 4 klúbbar fagnað þessum titli. Golfklúbbur Reykjavíkur hefur oftast sigrað eða 22 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 14 titla, Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 6 titla þar af eru þrír titlar þegar Golfklúbburinn Kjölur í Mosfellsbæ var til. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefur tvívegis fagnað sigri í efstu deild kvenna á Íslandsmóti golfklúbba.

Eftir Sigríður GR Golf
•
12. ágúst 2026
LEK mót golfklúbba fór fram á vel völdum golfvöllum landsins 10. - 11. ágúst. Golfklúbbur Reykjavíkur átti þar frábæra fulltrúa, líkt og undanfarin ár. LEK mót golfklúbba kvenna 65+ léku á Hústóftavelli í Grindavík. Í úrslitaleiknum mættust sveit Golfklúbbs Reykjavíkur og Golfklúbb Keilis sem fór þannig að GR vann leikinn 2,5 stig á móti 0,5 stigum - sigurvegarar og 1. sætið tryggt 🏆 Sveitina skipuðu: Guðrún Garðars Líney Rut Halldórsdóttir Oddný Sigsteinsdóttir Stefanía Margrét Jónsdóttir Steinunn Sæmundsdóttir Margrét Geirsdóttir Liðsstjóri: Margrét Geirsdóttir LEK mót golfklúbba karlar 75+ léku á Þorláksvelli í Þorlákshöfn. fram Í úrslitaleiknum mættust sveit Golfklúbbs Reykjavíkur og Golfklúbbs Suðurnesja hafði sveit GR betur og tryggði þar með 1. sætið. 🏆 Sveitina skipuðu: Brynjar Harðarson Hans Isebarn Gunnsteinn Skúlason Walter Hjartarson Ragnar Jónsson Þórhallur Sigurðsson Liðsstjóri: Gunnsteinn Skúlason LEK mót golfklúbba karlar 65+ léku á Öndverðanesvelli í Öndverðanesi. Í leiknum um 3. sætið mættust sveitir Golfklúbbs Reykajvíkur og Golfklúbbs Öndverðarness. Sveit GR hafði betur og vann þann leik 4,5 stig á móti 0,5 stigi. 🥉 Sveitina skipuðu: Brynjar Harðarson Einar Long Hannes Eyvindsson Jónas Kristjánsson Karl Vídalín Óskar Sæmundsson Ragnar Ólafsson Sigurður Hafsteinsson Sigurjón Árni Ólafsson Liðsstjóri var Sigurjón Árni Ólafsson Golfklúbbur Reykjavíkur óskar öllum sínum sveitum og keppendum innilega til hamingju með árangurinn! Vel gert - áfram GR! 💙

Eftir Sigríður GR Golf
•
11. ágúst 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru Íslandsmeistarar í golfi 2026. Íslandsmótinu lauk á Korpúlfsstaðavelli í dag, en bæði náðu þau að verja titil sinn frá síðasta ári. Þetta er í fyrsta skiptið frá árinu 1992 sem báðir titlarnir eru varðir. Dagbjartur Íslandsmeistari eftir örugga frammistöðu Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur hóf lokahringinn með sex högga forystu og lét hana aldrei af hendi. Hann lék lokahringinn á 71 höggi, pari vallarins, og lauk mótinu á 274 höggum, tíu undir pari. Dagbjartur fékk fjóra fugla og fjóra skolla á lokahringnum. Hann var einu höggi undir pari eftir fyrri níu holurnar og bætti við fugli á elleftu holu áður en hann tapaði tveimur höggum á 16. og 17. holu. Par á lokaholunni tryggði honum Íslandsmeistaratitilinn með fimm högga mun. Dagbjartur lék hringina fjóra á 66, 68, 69 og 71 höggi. Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss varð annar á fimm höggum undir pari. Hann lék lokahringinn á 70 höggum, einu undir pari, eftir að hafa fengið þrjá fugla á fyrstu sjö holunum. Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar átti næstbesta hring lokadagsins. Hann lék á 67 höggum, fjórum undir pari, og færðist upp í þriðja sætið á þremur höggum undir pari samtals. Tómas Eiríksson Hjaltested varð fjórði á tveimur höggum undir pari. Kristófer Orri Þórðarson og Hjalti Kristján Hjaltason deildu fimmta sætinu á einu höggi yfir pari. Guðrún Brá Íslandsmeistari í fimmta skiptið Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili hóf lokahringinn með þriggja högga forystu og lék á 71 höggi, pari vallarins. Hún lauk mótinu á 283 höggum, einu höggi undir pari, og varði þar með Íslandsmeistaratitil sinn. Þetta er hennar fimmti Íslandsmeistaratitill, en Guðrún hafði áður unnið árin 2018, 2019, 2020 og 2025. Með sigrinum hefur hún nú oftar unnið mótið en pabbi hennar, Björgvin Sigurbergsson, sem vann mótið fjórum sinnum. Guðrún er nú einnig næst sigursælasta konan í sögu mótsins, en Karen Sævarsdóttir er sú eina sem unnið hefur oftar. Karen varð átta sinnum Íslandsmeistari í golfi. Guðrún Brá fékk skolla á fyrstu holu en svaraði með erni á sjöundu holu. Hún fékk annan skolla á níundu holu áður en fugl á þeirri tíundu kom henni aftur undir par á hringnum. Skolli á elleftu holu varð síðasta tapaða högg hennar í mótinu og hún lék síðustu sjö holurnar á pari. Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni varð önnur á fjórum höggum yfir pari, fimm höggum á eftir Guðrúnu Brá. Elsa lék lokahringinn á 73 höggum og fékk tvo fugla á fyrstu sex holunum, en tapaði fjórum höggum á seinni níu. Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð þriðja á sex höggum yfir pari. Hún var komin þrjá undir par eftir átta holur á lokahringnum en erfiður kafli á seinni níu varð til þess að hún lauk leik á 74 höggum. Perla Sól Sigurbrandsdóttir varð fjórða á 14 höggum yfir pari. Heiða Rakel Rafnsdóttir og Pamela Ósk Hjaltadóttir deildu fimmta sætinu á 15 höggum yfir pari. Frábæru móti á Korpúlfsstaðavelli lokið. Mikill fjöldi fólks gerði sér ferð á völlinn á sá okkar bestu kylfinga leika á þessum flotta keppnisvelli. Hér má sjá heildarúrslit og tölfræði mótsins Hér má sjá myndapakka frá mótinu

Eftir Sigríður GR Golf
•
11. ágúst 2026
Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss eru stigameistarar GSÍ mótaraðarinnar árið 2026. Aron Emil fagnar sínum fyrsta stigameistaratitli en Perla Sól vinnur titilinn í annað sinn. Hún varð einnig stigameistari árið 2023. Perla Sól á meðal efstu fimm í öllum mótum sumarsins Perla Sól lék í öllum sjö mótum GSÍ mótaraðarinnar og lauk tímabilinu með 4.560 stig. Hún var 860 stigum á undan Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, sem varð önnur með 3.700 stig. Mikill stöðugleiki einkenndi sumar Perlu, en hún hafnaði í einu af fimm efstu sætunum í öllum mótum mótaraðarinnar. Perla hóf tímabilið á sigri í Reykjanesmótinu og fékk þar 1.000 stig. Hún varð önnur í Korpubikarnum, fimmta í Powerade-mótinu í Þorlákshöfn og þriðja á Íslandsmótinu í holukeppni. Hún deildi öðru sætinu í Hvaleyrarbikarnum og varð jöfn í þriðja sæti í Lexus-bikarnum á Leirdalsvelli. Perla lauk svo sumrinu í fjórða sæti á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli. Árangur Perlu í mótum sumarsins má finna í töflunni hér að neðan. Aðeins 110 stig skildu að Aron og Aron Baráttan um stigameistaratitilinn í karlaflokki var spennandi. Aron Emil lauk tímabilinu með 4.178 stig, einungis 110 stigum meira en Aron Snær Júlíusson, sem varð annar með 4.068 stig. Aron Emil lék í öllum sjö mótum sumarsins og var aldrei neðar en í sjöunda sæti. Hann vann ekki mót á tímabilinu en stöðug og góð frammistaða skilaði honum fyrsta stigameistaratitlinum. Hann hóf sumarið í fjórða sæti í Reykjanesmótinu og varð annar í Korpubikarnum. Aron Emil varð sjöundi í Powerade-mótinu og þriðji á Íslandsmótinu í holukeppni. Hann deildi fimmta sætinu í Hvaleyrarbikarnum og öðru sætinu í Lexus-bikarnum. Aron Emil lauk svo tímabilinu annar á Íslandsmótinu í golfi, þar sem hann fékk 1.050 stig og tryggði sér stigameistaratitilinn. Fyrst var keppt um stigameistaratitla kvenna og karla á Íslandi árið 1989. Perla Sól bætir nú öðrum titli sínum við þann sem hún vann árið 2023, en Aron Emil kemst í fyrsta sinn á lista stigameistara GSÍ mótaraðarinnar. Til hamingju með árangurinn Perla Sól og Aron Emil!

Eftir Sigríður GR Golf
•
6. ágúst 2026
Íslandsmótið í golfi 2026 hófst á Korpúlfsstaðavelli í morgun. Ragnhildur Sigurðardóttir, fjórfaldur Íslandsmeistari í höggleik, sló fyrsta högg mótsins við formlega setningu þess. Ragnhildur er ein af sigursælustu kylfingum íslenskrar golfsögu. Hún varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn árið 1985 á Jaðarsvelli á Akureyri, aðeins 15 ára gömul. Hún er enn í dag yngsti kylfingurinn sem hefur orðið Íslandsmeistari í golfi. Ragnhildur bætti síðar við þremur Íslandsmeistaratitlum, árin 1998, 2003 og 2005, og hefur því fjórum sinnum fagnað sigri á Íslandsmótinu. Hún hefur einnig unnið fjölmarga aðra titla á löngum og farsælum ferli og starfað um árabil við golfkennslu. Það var því vel við hæfi að Ragnhildur skyldi slá upphafshöggið á heimavelli sínum, en hún hefur um áratugaskeið verið einn af öflugustu kylfingum Golfklúbbs Reykjavíkur. Með höggi Ragnhildar var Íslandsmótið formlega sett, en leikið verður á Korpúlfsstaðavelli næstu fjóra daga. Á meðal viðstaddra voru Gísli Guðni Hall, formaður GR, Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ.
Eftir Sigríður GR Golf
•
5. ágúst 2026
Kæru félagsmenn, Við vonum að nýja 3. grínið veki ánægju, við biðja ykkur hinsvegar um að SLÁ EKKI af gömlu flötinni. Taka boltann upp og láta hann falla utan gömlu flatarinnar, líkt og um blátt svæði sé að ræða. Þess má geta að slái kylfingur af rangri flöt þá eru það 2 högg í víti. Kveðja, Vallarsvið

Eftir Sigríður GR Golf
•
5. ágúst 2026
Íslandsmótið í golfi 2026 fer fram á Korpúlfsstaðavelli Golfklúbbs Reykjavíkur dagana 6.-9. ágúst. Alls eru 132 kylfingar skráðir til leiks, 92 í karlaflokki og 40 í kvennaflokki. Á meðal keppenda eru fremstu kylfingar landsins, atvinnukylfingar og tíu fyrrverandi Íslandsmeistarar í golfi. Smelltu hér til að skoða rástíma og stöðu mótsins: Leikinn verður 72 holu höggleikur á fjórum keppnisdögum. Eftir fyrstu 36 holurnar verður keppendahópurinn skorinn niður fyrir tvo síðustu keppnisdagana. Sýnt verður beint frá síðustu þremur keppnisdögum mótsins á RÚV. Aldrei hefur verið sýnt jafn lengi frá Íslandsmótinu og verður mikið lagt í útsendinguna. Útsendingartímar: Föstudagur 7. ágúst kl. 15:30-18:30 Laugardagur 8. ágúst kl. 15:00-17:45 Sunnudagur 9. ágúst frá kl. 14:30 til mótsloka Þetta verður í 29. sinn sem sýnt er beint frá Íslandsmótinu í golfi í sjónvarpi. Fyrsta beina útsendingin var frá Hólmsvelli í Leiru árið 1998. Nánari upplýsingar um útsendinguna . Áhugasamir eru einnig hvattir til að mæta á Korpúlfsstaðavöll og fylgjast með fremstu kylfingum keppa um Íslandsmeistaratitlana. Aðgangur á mótið er ókeypis. Á yfirlitsmynd mótsins, sem hægt er að smella á til að stækka, má sjá staðsetningu bílastæða, salerna og veitingatjalds auk allra hola Korpúlfsstaðavallar.


