Opnun nálgast – mikil vinna á vallarsvæðum GR
Það er mikið um að vera á vallarsvæði GR þessa dagana og undirbúningur fyrir sumarið í fullum gangi. Starfsfólk vallarsviðs hefur unnið markvisst að því að koma völlunum í sem besta stand fyrir opnun og verður árangurinn sífellt sýnilegri með hverjum deginum.
Dúkur hefur verið lagður yfir viðkvæmustu flatirnar til að hraða vexti og jafna aðstæður, samhliða því sem verið er að bera áburð, valta, yfirsá og vökva. Hækkandi hitastig næstu daga ætti að hjálpa okkur enn frekar og við bindum góðar vonir við þróunina á næstunni.
Í næstu viku stendur til að tappagata teiga í Korpu og sanda þá með fræblöndu til að tryggja góða endurnýjun og betri spilaaðstæður þegar líður á sumarið.
Framkvæmdir við 1. braut í Grafarholti ganga einnig mjög vel og stefnt er að því að hefja tyrfingu brautarinnar í næstu viku. Brautin er þegar farin að taka á sig afar glæsilega mynd og mikil eftirvænting ríkir eftir að sjá lokaútfærsluna.
Þá verða teigar á 3. braut einnig tyrfðir á næstunni og teljum við að félagsmenn muni taka nýju og endurbættu teigstæðum fagnandi.
Við Korpu er jafnframt að rísa nýtt þvottaplan fyrir kylfur og kerrur sem verður kærkomin viðbót við þjónustu við kylfinga.
Eins og áður hefur verið kynnt er stefnt að opnun valla dagana 23.–24. maí.
Golfkveðja,
Vallarsvið GR
Recent Posts














